Öryggi Blandara; Mikilvæg Öryggisatriði - KitchenAid 5KSB1585 Manual

Hide thumbs Also See for 5KSB1585:
Table of Contents

Advertisement

Available languages
  • EN

Available languages

  • ENGLISH, page 1
cmd + shift click to change copy
ÖRYGGI BLANDARA
Öryggi þitt og öryggi annarra er mjög mikilvægt.
Við höfum sett mörg mikilvæg öryggisfyrirmæli í þessa handbók og á tækið þitt.
Áríðandi er að lesa öll öryggisfyrirmæli og fara eftir þeim.
Þetta er öryggisviðvörunartákn.
Þetta tákn varar þig við hugsanlegum hættum sem geta deytt eða
meitt þig og aðra.
Öllum öryggisviðvörunartáknum fylgja öryggisfyrirmæli og annaðhvort
orðið „HÆTTA" eða „VIÐVÖRUN". Þessi orð merkja:
HÆTTA
VIÐVÖRUN
Öll öryggisfyrirmælin segja þér hver hugsanlega hættan er, hvernig draga á úr hættu
á meiðslum og hvað getur gerst ef leiðbeiningum er ekki fylgt.
MIKILVæG ÖRYGGIsATRIÐI
Við notkun raftækja þarf ávallt að fylgja grundvallar­
öryggisráðstöfunum, þar á meðal:
1. Lesa allar leiðbeiningar.
2. Til að verjast hættunni af raflosti skal ekki setja blandarann
í vatn eða annan vökva.
3. Börn, 8 ára og eldri og fólk með minnkaða líkamlega-, skyn-
eða andlega getu, eða sem skortir reynslu og þekkingu, mega
nota þetta tæki, ef þeim hafa verið veittar leiðbeiningar
varðandi örugga notkun tækisins og ef þau skilja hættuna sem
því fylgir. Börn skulu ekki leika sér með tækið. Hreinsun og
notandaviðhald skal ekki framkvæmt af börnum án eftirlits.
4. Taktu blandarann úr sambandi þegar hann er ekki í notkun,
áður en hlutir eru settir á eða teknir af og fyrir hreinsun.
5. Forðastu að snerta hluti sem hreyfast.
6. Ekki nota blandarann með skemmdri snúru eða kló. Ekki heldur
eftir að tækið hefur bilað, dottið eða verið skemmt á einhvern
hátt. Farðu með tækið á næsta viðurkennda þjónustuverkstæði
vegna skoðunar, viðgerðar eða stillingar á raf- eða vélhlutum.
7. Ekki nota utanhúss.
8. Ekki láta snúruna hanga fram af borði eða bekk.
Þú getur dáið eða slasast alvarlega ef
þú fylgir ekki leiðbeiningunum þegar í stað.
Þú getur dáið eða slasast alvarlega
ef þú fylgir ekki leiðbeiningum.

Advertisement

Table of Contents
loading

Table of Contents